Colas er leiðandi afl í vegagerð, malbikun og nýsköpun í vegaframkvæmdum á Íslandi og býður upp á fyrsta flokks þjónustu við malbikun og gatnaframkvæmdir.
Fyrirtækið hefur áratuga reynslu af gatnagerð og lagningu malbiks og slitlags og leggur ríka áherslu á að bæta vegagerð á Íslandi og auka umferðaröryggi. Þá leggur fyrirtækið mikla áherslu á öruggt og heilbrigt starfsumhverfi.
Colas hugar að umhverfismálum við alla þróun og framleiðslu og hefur endurunnið malbik í meira en aldarfjórðung. Þá hefur fyrirtækið sett sér það markmið að verða kolefnishlutlaust árið 2035.
Colas er í eigu Colas Danmark A/S.




