Framkvæmdadeildin sér um ýmsar útfærslur á útlögnum malbiks.
Í bikstöð er bæði afhending biks ásamt framleiðslu á efnum til klæðninga; bikþeytu, þunnbiki og þjálbiki. Bikþeyta er blanda af biki (50–69%), vatni og ýruefnum sem er blandað saman með vissri tækni í bikþeytukvörn. Þjálbik er blanda af stungubiki og þynningarefnum, oftast notast við ethyl ester, sem er blandað saman með því að dæla beint á bíl. Þunnbik er einnig blanda af stungubiki og þynningarefnum en þau þynningarefni sem notuð eru í þunnbik eru rokgjarnari heldur en þau sem notuð eru í þjálbik.


